Hin 14 ára Marsí skrifast á við strák sem býr hinum megin á landinu. En hún gerir það í nafni systur sinnar. Bréfaskiptunum lýkur með því að þau ákveða að hittast. Marsí kemst ekki til að hitta hann en þar sem þau höfðu mælt sér mót finnst blóðug úlpa systur hennar sem er horfin. Tíu árum síðar hefur þessi óþekkti pennavinur samband á ný.
Hin 14 ára Marsí skrifast á við strák sem býr hinum megin á landinu. En hún gerir það í nafni systur sinnar. Bréfaskiptunum lýkur með því að þau ákveða að hittast. Marsí kemst…
Björgunarsveitir eru sendar inn í Lónsöræfi í leit að hópi fólks sem er saknað. Hvaða erindi áttu þau í óbyggðir um hávetur? Af hverju yfirgáfu þau það litla skjól sem þau höfðu, illa búin og berskjölduð? Á sama tíma gerast undarlegir atburðir á ratsjárstöðinni á Stokksnesi. Og á nesinu er gat í sjávarklöpp sem sogar til sín fólk ...
Hér er ekki allt sem sýnist, hvort sem það er blóðblettur í snævi þöktu landslagi fjarri mannabyggðum, truflanir á ratsjá – eða barnsskór sem kemur óvænt fram áratugum eftir að hann hvarf.
Björgunarsveitir eru sendar inn í Lónsöræfi í leit að hópi fólks sem er saknað. Hvaða erindi áttu þau í óbyggðir um hávetur? Af hverju yfirgáfu þau það litla skjól sem þau höfðu,…
Umsvifamikill fjárfestir finnst látinn í Gálgahrauni, á hinum forna aftökustað sem blasir við frá Bessastöðum. Barnaverndaryfirvöldum í Reykjavík er tilkynnt um lítinn dreng sem er aleinn og yfirgefinn í ókunnugri íbúð. Og fjórir vinir óttast að leyndarmál þeirra verði afhjúpað. Þessir ólíku þræðir fléttast saman í magnaðri glæpasögu hjá Yrsu Sigurðardóttur.
Við lausn málsins leggja saman krafta sína Huldar lögreglumaður og sálfræðingurinn Freyja sem lesendur þekkja úr fyrri sögum Yrsu; Aflausn, Soginu og DNA, en DNA var valin besta íslenska glæpasagan 2014 og besta glæpasagan í Danmörku 2016.
Umsvifamikill fjárfestir finnst látinn í Gálgahrauni, á hinum forna aftökustað sem blasir við frá Bessastöðum. Barnaverndaryfirvöldum í Reykjavík er tilkynnt um lítinn dreng sem…
Lýst er eftir átta ára stúlku sem hverfur úr skólanum einn haustdag. Undarlegur spádómur unglings kemur upp úr hylki sem innsiglað var fyrir tíu árum, í kjölfarið taka voveiflegir atburðir að gerast í Reykjavík. Og lögreglan er ráðalaus.
Hér stíga fram á sviðið sömu aðalpersónur og í síðustu bók Yrsu Sigurðardóttur, DNA, bestu íslensku glæpasögunni árið 2014.
Sogið er ellefta glæpasaga Yrsu en Þriðja táknið kom út fyrir nákvæmlega tíu árum. Á þessum tíma hefur hún í tvígang fengið Blóðdropann fyrir bestu íslensku glæpasöguna og í fyrra átti hún bestu norrænu glæpasöguna í Bretlandi.
Lýst er eftir átta ára stúlku sem hverfur úr skólanum einn haustdag. Undarlegur spádómur unglings kemur upp úr hylki sem innsiglað var fyrir tíu árum, í kjölfarið taka voveiflegir…
Ung kona er myrt á hryllilegan hátt á heimili sínu að nóttu til. Eina vitnið er sjö ára dóttir hennar. Skömmu síðar lætur morðinginn aftur til skarar skríða. Radíóamatör fær sérkennileg skilaboð á öldum ljósvakans sem tengja hann við bæði fórnarlömbin. Þó þekkir hann hvorugt þeirra.
Ung kona er myrt á hryllilegan hátt á heimili sínu að nóttu til. Eina vitnið er sjö ára dóttir hennar. Skömmu síðar lætur morðinginn aftur til skarar skríða. Radíóamatör fær…
Þegar ungur maður fer að rannsaka starfsemi unglingaheimilis frá áttunda áratugnum taka undarlegir atburðir að skekja tilveru hans og dóttur hans. En hvort eiga þeir rætur að rekja til hörmunga sem dundu yfir upptökuheimilið eða til sviplegs fráfalls barnsmóður hans hálfu ári fyrr?
Þegar ungur maður fer að rannsaka starfsemi unglingaheimilis frá áttunda áratugnum taka undarlegir atburðir að skekja tilveru hans og dóttur hans. En hvort eiga þeir rætur að…
Hvað varð um fjögurra manna fjölskyldu og þriggja manna áhöfn snekkju sem rekur mannlausa inn í Reykjavíkurhöfn? Þóra Guðmundsdóttir lögmaður fær það verkefni að grafast fyrir um örlög fólksins en um leið kemst lesandinn smám saman að því hvaða óhugnanlegu atburðir áttu sér stað um borð.
Hvað varð um fjögurra manna fjölskyldu og þriggja manna áhöfn snekkju sem rekur mannlausa inn í Reykjavíkurhöfn? Þóra Guðmundsdóttir lögmaður fær það verkefni að grafast fyrir um…
This horrifying thriller, partly based on a true story, is the scariest novel yet from an international bestseller.
The crunching noise had resumed, now accompanied by a disgusting, indefinable smell. It could best be described as a blend of kelp and rotten meat. The voice spoke again, now slightly louder and clearer:
Don't go. Don't go yet. I'm not finished.
In an isolated village in the Icelandic Westfjords, three friends set to work renovating a derelict house. But soon they realise they are not alone there - something wants them to leave, and it's making its presence felt.
Meanwhile, in a town across the fjord, a young doctor investigating the suicide of an elderly woman discovers that she was obsessed with his vanished son.
When the two stories collide the terrifying truth is uncovered . . .
This horrifying thriller, partly based on a true story, is the scariest novel yet from an international bestseller.
The crunching noise had resumed, now accompanied by a…
Þóra Guðmundsdóttir lögmaður reynir að fá endurupptekið mál fatlaðs manns sem situr inni á Sogni fyrir að kveikja í sambýli með hörmulegum afleiðingum. Á sama tíma sækir látin stúlka í að standa við fyrirheit um að passa lítinn dreng. Yrsa Sigurðardóttir bregst ekki dyggum lesendum sínum í magnaðri glæpasögu!
Þóra Guðmundsdóttir lögmaður reynir að fá endurupptekið mál fatlaðs manns sem situr inni á Sogni fyrir að kveikja í sambýli með hörmulegum afleiðingum. Á sama tíma sækir látin…
Ekkert samband næst við tvo Íslendinga í einangruðum rannsóknarbúðum á Norðaustur Grænlandi. Þóra Guðmundsdóttir lögmaður, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum Yrsu Sigurðardóttur, tekur þátt í leiðangri sem gerður er til að kanna aðstæður. Hvað varð um mennina tvo? Hver voru örlög konu sem hvarf úr búðunum nokkru áður? Af hverju hafa heimamenn illan bifur á þessu afskekkta svæði? Hvaða óhugnanlegu atburðir hafa átt sér stað þarna úti í auðninni? Yrsa Sigurðardóttir í sínu besta formi!
Ekkert samband næst við tvo Íslendinga í einangruðum rannsóknarbúðum á Norðaustur Grænlandi. Þóra Guðmundsdóttir lögmaður, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum Yrsu Sigurðardóttur,…
Sumarið 2007 finnast líkamsleifar í húsi sem fór undir ösku í eldgosinu í Vestmannaeyjum árið 1973. Skjólstæðingur Þóru Guðmundsdóttir lögmanns, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum Yrsu Sigurðardóttur, er grunaður um að hafa falið lík á heimili sínu forðum. Og þegar æskuástin hans úr Eyjum finnst myrt aukast enn vandræði hans.
Sumarið 2007 finnast líkamsleifar í húsi sem fór undir ösku í eldgosinu í Vestmannaeyjum árið 1973. Skjólstæðingur Þóru Guðmundsdóttir lögmanns, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum…