Вручение 2018 г.

Страна: Исландия Дата проведения: 2018 г.

Премия «Капля крови»

Лауреат
Лилья Сигурдардоттир 0.0
Búrið er æsispennandi lokaþáttur í þríleik Lilju Sigurðardóttur um eiturlyfjasmygl, efnahagsglæpi og eldheita ást í Reykjavík samtímans. Fyrri bækurnar, Gildran og Netið, hlutu frábærar viðtökur.
Búrið gefur þeim ekkert eftir.

Agla afplánar dóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Ekkert bíður hennar utan múranna og Sonja ástkona hennar er horfin á braut. Agla er því fljót að grípa tækifærið þegar fulltrúi erlends stórfyrirtækis biður hana um aðstoð í máli sem ekki má fara hátt. Það snýst um flókið fjármálamisferli
og þar er hún á heimavelli. Með aðstoð Maríu, sjálfstætt starfandi blaðamanns, ræðst Agla til atlögu við hákarlana.
Álkóngurinn Ingimar á sér einskis ills von en þegar María fer að spyrja óþægilegra spurninga bregst hann snarlega við – og það er leikur kattarins að músinni. Í kjallaranum heima hjá honum liggja hins vegar dýnamítstangir sem hann veit ekki af og bíða réttu stundarinnar …